Margir kjarasamningar samþykktir í vikunni
Fimm atkvæðagreiðslur vegna nýrra kjarasamninga fyrir félagsmenn VM voru til lykta leiddar í vikunni. Kjarasamningarnir voru allir samþykktir.
- Sveitarfélögin samþykkt með 84,85% greiddra atkvæða
- Hvalaskoðunarskip samþykkt á jöfnu
- Hafrannsóknarstofnun samþykkt með 100% greiddra atkvæða
- Landhelgisgæslan samþykkt með 75% greiddra atkvæða
- Landsvirkjun samþykkt með 91,3% greiddra atkvæða
Unnið verður hörðum höndum að því að klára þá kjarasamninga sem eftir á að klára á næstu vikum fyrir stéttarfélögin innan Fagfélaganna.