2022
Bransadagar Iðunnar
Fréttir

Bransadagar Iðunnar

Bransadagar Iðunnar fara fram í fyrsta sinn í ár með fjölbreyttri fræðslu helgaðri sjálfbærni í iðnaði.

Á bransadögum koma saman ólíkar iðngreinar og setja sjálfbærni í brennidepil; prent- og miðlunargreinar, matvæla- og veitingagreinar, bygginga- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar og bílgreinar.

Dagana 9. og 10. nóvember verður boðið upp á stafræna fyrirlestra á vefnum frá innlendum og erlendum sérfræðingum í sjálfbærni og umhverfismálum í iðnaði. Við endum svo vikuna á brjáluðu bransapartíi í húsnæði Iðunnar að Vatnagörðum 20, föstudaginn 11. nóvember nk.

Húsið opnar kl. 15:00 með skemmtilegri dagskrá.

  • Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku og loftslagsmála fjallar um grænan iðnað
  • Sonja Rut Aðalsteinsdóttir, service development manager og Sigurður Örn Alfonsson, sustainability specialist kynna sjálfbærnivegferð Marels
  • Kynning á verkefninu orkuskipti.is
  • Snjólaug Lúðvíks með uppistand
  • Frikki Dór stígur á svið
  • Júlladiskó sér um að þeyta skífum
  • Veitingar frá Lady Brewery og Kokkunum

Það kostar ekkert í partíið en það þarf að skráð sig hér.