2022
Fundur Norræna vélstjórasambandsins
Fréttir

Fundur Norræna vélstjórasambandsins

Dagana 2. og 3. maí sl. fundaði Norræna vélstjórasambandið í Helsinki.

Fyrir fundi sambandsins skila löndin landsskýrslum sem eru svo ræddar á fundunum.
Að þessu sinni voru öryggismál í víðum skilningi og nýir orkugjafar mönnum ofarlega í huga, auk menntamála.

Fulltrúi frá samtökum finnskra kaupskipaútgerða fór yfir aðstæður og framtíðarhorfur í rekstri útgerða í Finnlandi.

Innrás Rússlands í Úkraínu hafði áhrif á dagskrá fundarins og var eftirfarandi ályktunsamþykkt:

Norræna vélstjórasambandið fordæmir innrás Rússa í Úkraínu og styður refsiaðgerðir sem yfirvöld á norðurlöndunum hafa gripið til.
Sambandi krefst þess jafnframt að útgerðir á norðurlöndunum fylgi refsiaðgerðunum.

Sambandið krefst þess einnig að yfirvöld á norðurlöndunum fari að alþjóðlegum reglum um réttindi sjómanna, sérstaklega varðandi þörf fyrir ferskvatn, matvæli og læknismeðferð.

Norræna vélstjórasambandið styður ályktun siglingaöryggisnefndar alþjóða siglingastofnunarinnar frá 105. fundi nefndarinnar, í maí 2022.