2024
Kjarasamningur VM og SA samþykktur
Fréttir

Kjarasamningur VM og SA samþykktur

Félagsmenn hafa í atkvæðagreiðslu samþykkt kjarasamning VM og SA, sem skrifað var undir í Karphúsinu 9. mars síðastliðinn. Atkvæðagreiðslu lauk í dag, klukkan 14:00. Tæplega 72% þátttakenda samþykktu samninginn.

Samningurinn gildir til fjögurra ára og tekur gildi frá 1. febrúar síðastliðnum.